Umbúðar og vörumerkjahönnun
2023
Hreintóna morgunkorn
HreinDýrið var skólaverkefni hjá mér veturinn 2023. Ég vildi hanna vörumerki sem stendur hart á því að svíkja ekki kúnnann. Vera hreynskilið, traustvekjandi og ekki aðeins sjá neytendur sem neytendur, heldur fólk sem vill lifa óspylltu, heilbrígðu lífi og setur heilsuna í forgang.
Vörumerkið á að vera nútímalegt en "gamaldags" eða eins og ég seigi oft "hrátt" þó snyrtilegt, faglegt og fallegt. Í raun á það að vera tímalaust og það þýðir að sama hvað tímanum líður þá mun það alltaf vera í tísku.


HreinDýrið er fyrsta lógóið sem ég vinn með að nýta nekatíf og positíf form í letrinu. Hreindýr er dýrið í lógóinu, enda mest viðeigandi þegar að það kemur að nafninu og gerir það lógóið einkennandi og skemmtilegt.



Mér fannst viðeigandi fyrir fyrirtækið að hafa litapallettuna náttúrulega og tiltölega hlutlausa en nýta mikinn "kontrast" í notkun.
Litapallettan
Lógóið
Lógóið sjálf á að vera vingjarnlegt og saklaust en samt vekja upp traust meðal neytenda. Því eru mikið af hvössum hornum og formföstum línu, það bæði virkar snyrtilegt en ákveðið og þaðan kemur traustið.
Samfélagsmiðlar
Samfélagsmiðlar sem og lógóið í mismunandi notkun hefði ég séð fyrir mér nýta það svona. Halda vörum snyrtilegum og tiltölega einföldum.



Umbúðirnar
Hreintóna morgunkorn er á vegum Hrein Dýrsins. Það er góð viðbót fyrir daginn og lífið. Aðeins “hrein” hráefni eru notuð við framleiðslu.
Ég vildi hafa morgunkornið áhugavert og vekja upp hrifningu meðal neytenda. Samt sem áður vildi ég að það væri ekki of litríkt og öskrandi, heldur fremur hrátt og náttúrulegt. Einnig bætti ég við orðaleik aftan á umbúðina til að mynda enn sterkari tengsl fólks á umbúðunum og morgunkorninu sjálfu.
EKKERT KJAFTÆÐI
var uppspretta af því að vera komin með nóg af matvörum sem gefa út falskar upplýsingar á pakkningum bara til að fá neytendur til að kaupa þær.

#BCA47A
#72544C
#F4EF8D
#674B70
#FBC9B6
#C36CAA
Litirnir eru samansettir af grunntón, skærari lit og svo djúpum dekkri lit.
Litirnir eiga að vekja upp traust hjá fólki og áhuga á vörunni. Litirnir eru þannig séð dempaðir í samanburði við margt sem sést í búðum en það gerir vöruna meira jarðbundna og "gamla".
Litapallettan


Allar teikningarnar eru handgerðar á pappír og svo breyttar í vector í illustrator. Teikningarnar eru skemmtilegri en að nota ljósmyndir og hefur með sér ákveðinn sjarma eða þetta "rettró" look.
Berjabomba er blanda með quinoa, þurrkuðum bláberjum, jarðarberjum, kirsuberjum og pekan hnetum.
Mér fannst fjólublá og bleik palletta passa best við þessa bragðtegund.


#4A724D
#EFCE8C
#F7941D

Tropical eða hitabeltis umbúðirnar eru í mínu uppáhaldi af þrenningunni. Teikningarnar voru sérstaklega skemmtilegar og komu vel út á pakkningunni.

_20240913-03.png)
_20240913-01.png)
_20240913-02.png)
Mynstrið að innan verðum pakkningunum