Umbúðar og vörumerkjahönnun
2023
PlayTail
PlayTail er fyrirtæki sem sér um dagvistun hunda (hundaleiksskóli) og er hannað á mínum eigin vegum.
PlayTail á að vera fyrirtæki staðsett í Póllandi nálægt bænum Rzesow. Við maðurinn minn höfum stundum talað um að flytja á hans heima slóðir og stofna lítið fjölskyldufyrirtæki saman.
Við erum mikið fyrir dýr en það er mikil hundamenning í Póllandi. Staðsetningin væri aðeins út fyrir borgina þar sem við ættum stórt land og gætum því verið með nóg af útisvæðum og hólfum fyrir hundana, gott pláss og mikla möguleikar á að uppfylla þær þarfir sem hver og einn hundur þarf. Hvort sem það er leikur við aðra, eða leikur við starfsmann, naga bein eða að grafa. Hugsunin á bakvið PlayTail er að hundarnir fái næga útrás og útiveru og samveru með öðrum hundum á meðan eigendur eru frá í vinnu eða að sinna öðru daglegu amstri og þurfa því ekki að hafa áhyggjur af hundinum.
PlayTail á að endurspeglar fagmennsku og ábyrgð starfsmanna ásamt skemmtun, útrás, útgeislun og gleði. Þó á fyrirtækið einnig að bjóða upp á ró sem stuðlar að minna stressi og álagi á hundana og að þeir koma afslappaðir og sáttir heim til sín, ekki upptrekktir, yfirspenntir og stressaðir.
Það er mikilvægt að rétt sé farið að dýrum, að það sé litið á þau sem einstaklinga með mismunandi persónuleika og að þau séu partur af fjölskyldunni. Fólk á erfitt með að treysta öðrum með dýrin sín og því er fagmennska mikilvæg og að sýnt sé mikil alúð í garð þeirra. Slys geta átt sér stað og hundar skaðast andlega og líkamlega ef það er ekki rétt farið að.
Í minni rannsók skoðaði ég mismunandi nöfn á fyrirtækinu en ég endaði á að velja nafnið PlayTail þar sem mér fannst það vera stutt, lýsandi og grípandi og passa vel við þær hugmyndir sem ég var með. Einnig skoðaði ég önnur fyrirtæki í Póllandi sem bjóða upp á svipaða þjónustu og var ég að líta á einkunnir og ummæli sem fólk gaf þeim fyrirtækjum. Ég fór einnig útfyrir Pólland að skoða mismunandi útfærslum á hundaleiksskólum annarsstaðar erlendis.


vörumerkið er kjarninn í að gefa upp stemningu fyrirtækisins og gefur manni mikið af upplýsingum.
LÓGÓIÐ
Ég gaf mér góðan tíma í þróun lógósins og vann með einfaldar útfærslur sem og flóknar. Markmiðið var að sýna fram á leikgleði og ánægju með heyfingu sem minnir á dillandi hundsskott. Að lokum sleppti ég algjörlega takinu á sjálfri mér og fór að vinna með lógóið líkt og leir til að ná fram lífleikanum í lógóinu.




Þó að lógóið eigi að endurspegla fagmennsku þá vildi ég ekki að lógóið væri of alvarlegt. Reglurnar ekki heilagar heldur viðmið. Hér sést að lógóið er ekki alveg í miðjunni og loftið innan lógós er ekki alltaf jafnt. Þykktin á letrinu sem og fígúrunni er ekki alltaf jafnt og sum horn eru hvöss á meðan önnu eru mjúk.
Þó svo að lógóið er ekki mjög reglubundið þá nær það mjög góðri heild og er einkennandi og snyrtilegt.


Fleiri útgáfur
Notkunarmörguleikar lógósins þurfa að vera mismunandi og því voru hannaðar fleiri útgáfur sem hægt væri að velja á milli.


Þröngt svæði

Social Media
Góð staða á samfélagsmiðlum í dag er eitt af því mikilvægasta sem fyrirtæki geta lagt uppúr til að ná til sinn neytandahóp. Bæða veitir það fyrirtækinu möguleika á að auglýsa sig, sem og tækifæri til að sýna frá daglegum störfum sem getur oft myndað tilfinningaleg tengsl við áhorfendur.
Hugmyndin fyrir PlayTail er að deila myndum og mynskeiðum af daglegu amstri í hundapössuninni sem og fræða fólk og mynda tengingu hjá fólki við fyrirtækið þannig að því líður líkt og að það sé partur af því.






Highlight Icons

Highlight iconin áttu að vera fersk og skemmtileg. Ég teiknaði fyrst upp í spjaldtölvunni minni sem ég svo færði yfir í illustrator og vann betur.

Litapallettan var valin með það í huga að hafa ákveðna liti, ásamt því að þeir endurspegli náttúruna og tilfinningu hundana.
Litapallettan
#fc7112
#798946
#628eb3
#fffbc7
#212123
Notaður aðallega í útlínur og bakgrunn
Gras, náttúra, ferskleiki og traust
Sterkur litur. Hamingja, orka og gleði. Litur sem hægt er að tengja við sól og hita.
Ljós litur sem gefur fram Hamingju, birtu og ryk/sand.
Himinn, bjart og jákvæðni.



Letur
Leturtýpurnar sem voru valdar fyrir hvert hlutverk virka vel á hvor aðra. Queen neko notaði ég fyrir að hanna lógóið. Mér fannst það skemmtilegt og lifandi en formfast sem gerði mér kleypt að móta það eins og ég vildi. All Round Gothic notaði ég með en það er mjög hringlaga letur sem gerir það mjúkt en formfast. Chennai er notað í markaðsetningu en það skér sig aðeins út frá hinu letrinu en er samt mjúkt, lifandi og létt. Baloo Bhai 2 Kom svo vel út fyrir vefsíðuna þar sem það er fallegt, snyrtilegt, mjúkt og með gott flæði.

Ég tók minn tíma að æfa mig að teikna hunda áður en ég fór í að hanna fígúrurnar fyrir vörumerkið. Ég vildi geta skilið anatómíu hundana enn betur til að hafa meiri mýkt og frelsi í hönnun og teikningu þeirra, það gefur oft meiri karakter og einkenni.
Fyrst teiknaði ég á blað sem ég svo dróg eftir í spjaldtölvunni.






Æfinga teikningar
Fígúrur



Ég vildi að fígúrurnar myndu endurspegla gleði og skemmtun. Vera nokkuð raunverulegar og gefa til kynna að allar tegundir eru velkomnar.
Umbúðarhönnun




