Lógó - Endurhönnun
2024 - 2026
LÓGÓIÐ MITT - ENDURHÖNNUN
Ég gerði fyrstu útgáfu vefsíðunarinnar haustið 2024 og þar með skellti ég mér í fyrsta lógóið mitt á SólB Design.
Fyrsta útgáfan átti að vera mjög hrá og meira út í teikningu en áherslu á "einfalt og faglegt" lógó. Ég vildi endurspegla minn teiknihæfileika og gera þetta að meira listamanna lógói en grafísk hönnuðs.
Önnur útgáfan var hönnuð ári seinna og þá hafði smekkurinn og tilfinningin breyst. Ég vildi að lógóið væri meira áberandi, tæki minna pláss og virkaði faglegra. Meira í átt að grafískum hönnuði og kæmi vel út í prenti og notkun. Ég nýtti það sem ég var með áður í lógóinu en gaf smá "upgrade" til að ná betri sameiningu. Eldri útgáfan var flókin, leit illa úr í fjarska, vantaði betri heild og myndaði asnalegt gat á milli "SÓL" og teikningarinnar.
Væntanlegt komandi framtíð að kafa dýpra í þessi lógó.
Nýja útgáfan


Gamla útgáfan